Markmið Spretts er að stuðla að aukinni þátttöku innflytjenda í háskólanámi. Sprettur vill rækta styrkleika sem felast í fjölmenningarlegu, fjöltyngdu og þverfaglegu háskólasamfélagi.
Fjöldi innflytjenda eiga skilið tækifæri til að upplifa háskólalíf, en margir þeirra þurfa öflugt stuðningsnet til að takast á við þær kröfur sem fylgja háskólanámi í skapandi og hvetjandi umhverfi sem byggir á fjölmenningarlegu lærdómssamfélagi.
Gildi Spretts eru inngilding, jöfn tækifæri til menntunar, gagnkvæm aðlögun, að tilheyra, virk borgaravitund, félagslegt réttlæti, fjölmenningarleg viska, vistfræðileg hugsun, jarðarborgaravitund, lærdómssamfélög.
Munið: Aðgangur án stuðnings er ekki tækifæri.
Sprettur stuðlar að gagnkvæmri aðlögun núverandi og verðandi nemenda með erlendan bakgrunn í háskólasamfélaginu með innleiðingu fjölbreyttra verkefna:
Ráðgjöf við nemendur og tilvonandi háskólanemendur: Sprettur veitir upplýsingar, leiðbeiningar og ráðgjöf sem hjálpa einstaklingum að íhuga möguleika og skilyrði fyrir inngöngu í háskólanám.
Námshópar fyrir nemendur: Sprettur býður reglulega námshópa með mentorum til að styðja við heimanám í mismunandi námsgreinum. Hóparnir eru sérstaklega ætlaðir nemendum sem eru að ljúka framhaldsskóla og nemendum við Háskóla Íslands. Skráning er nauðsynleg.
Undirbúningur fyrir háskólanám, opið öllum: Röð fyrirlestra og vinnustofa sem styðja þátttakendur við að undirbúa sig fyrir nám í háskóla, með áherslu á námslegar, félagslegar og menningarlegar áskoranir. Viðburðirnir eru opnir innflytjendum gegn skráningu.
Stuðningur við íslenskunám, opið öllum: Viðbótarstuðningur er veittur við æfingar í íslensku og mismunandi aðferðir við tungumálanám kynntar.
Fjölmenningarleg leiðsögn / mentoring innan Háskóla Íslands: Sprettur býður upp á þjálfun og fræðslu fyrir mentora í því mikilvæga hlutverki að styðja nám og menningaraðlögun nemenda með erlendan bakgrunn.
Vinnustofur fyrir innleiðingu mentorakerfa fyrir framhaldsskóla: Vinnustofur þar sem unnið er með þróun og innleiðingu mentorakerfa í framhaldsskólum. Vinnustofurnar eru sérsniðnar að staðbundnum aðstæðum og þörfum. Nánari upplýsingar veitir Verkefnisstjóri Spretts.
Inngilding í íslensku háskólasamfélagi: Sprettur tekur virkan þátt í mótun stefnu um inngildingu innflytjenda í opinberum háskólum á Íslandi.